|
Written by Administrator
|
|
Thursday, 26 January 2012 13:14 |
|
Síðastliðinn föstudag skrifuðu 4 leikmenn undir leikmannasamning við D/R. Það voru þeir Snorri Eldjárn Hauksson, Gunnar Már Magnússon, Viktor Már Jónasson og Reynir W. Lord sem riðu á vaðið. Við óskum þeim og D/R til hamingju með samninginn. Áfram verður haldið með samningana á næstu dögum.
|
|
|
Written by Gunnar Már Magnússon
|
|
Tuesday, 24 January 2012 11:33 |
|
Æfing í kvöld, þriðjudaginn 24. janúar, í Boganum. Æfingin hefst aðeins fyrr að þessu sinni eða kl. 20:30. Mætin inn í Boga 20:15. Dalvíkingar mæta í N1 en það er brottför kl. 19:30, stundvíslega! Munið að taka hlaupaskóna með ykkur því það verður hlaupatest!!
|
|
Umfjöllun: Svekkjandi jafntefli |
|
Written by Administrator
|
|
Sunday, 22 January 2012 09:59 |
|
- Jan Eric Jessen skrifar Völsungur 3 - 3 Dalvík/Reynir  1-0 Enok Eiðsson ('8) 2-0 Arnþór Hermannsson ('45) 2-1 Hermann Albertsson ('48) 2-2 Bessi Víðisson ('58) 2-3 Bessi Víðisson ('66) 3-3 Hafþór Mar Aðalgeirsson ('87) Völsungur og Dalvík/Reynir áttust við í afar spennandi leik í Hleðslumótinu í gær. Húsvíkingar voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og sköpuðu sér fleiri hættuleg marktækifæri. Strax á 8. mínútu fékk Enok Eiðsson stungusendingu innfyrir vörn Dalvíkur/Reynis og kom Völsungi í 1-0 með skoti í fyrstu snertingu. Arnþór Hermannsson hefði getað tvöfaldað forystuna á 17. mínútu leiksins þegar hann fékk dauðafæri við markteig Dalvíkinga en Steinþór Már Auðunsson varði vel í markinu. Hættulegasta færi þeirra bláklæddu í fyrri hálfleiknum kom á 26. mínútu. Þá slapp Hilmar Daníelsson einn í gegnum vörn Völsungs en markverði Völsungs, Ingólfi Erni Kristjánssyni, tekst að ná til boltans. Boltinn hrökk til Bessa Víðissonar, leikmanns Dalvíkur/Reynis, en hann skaut boltanum yfir markið af stuttu færi, einn gegn einum varnarmanni Völsungs. Þegar komið var fram í uppbótartíma fyrri hálfleiks fékk Völsungur dæmda vítaspyrnu þegar varnarmaður Dalvíkur/Reynis gerist brotlegur innan teigs. Arnþór Hermannsson steig á punktinn og setti boltann örugglega í netið. Hálfleikstölur voru 2-0 fyrir Völsung.
Eitthvað hefur Þórir Áskelsson, þjálfari Dalvíkur/Reynis, sagt við sína menn í háfleik – því það var eins og allt annað lið hefði mætt til leiks þegar Vilhelm Adolfsson, dómari leiksins, flautaði síðari hálfleikinn á. Dalvík/Reynir hafði mikla yfirburði inná vellinum fyrri hluta síðari hálfleiks og tókst á 18 mínútna kafla að skora þrjú mörk. Fyrst var það Hermann Albertsson sem minnkaði muninn í 2-1 á 48. mínútu með skoti af stuttu færi eftir gott spil upp vinstri kanntinn. Tíu mínútum síðar jafnaði Bessi Víðisson leikinn með glæsilegum stunguskalla á 58. mínútu eftir flotta sendingu af hægri vængnum frá Viktori Má Jónassyni. Bessi var síðan aftur á ferðinni á 66. mínútu þegar hann smurði boltann upp í fjærhornið framhjá Ingólfi Erni Kristjánssyni í marki Völsungs úr frekar þröngu færi. Staðan því orðin 3-2 fyrir Dalvík/Reyni.
Á 76. mínútu hefði Hilmar Daníelsson getað svo gott sem gert út um leikinn fyrir Dalvíkinga. Hann komst þá aleinn og óvaldaður í gegnum vörn Völsungs en Ingólfur Örn gerði mjög vel með því að verja skot hans. Þegar um fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma braut varnarmaður Dalvíkur/Reynis klaufalega á sóknarmanni Völsungs innan vítateigs og því önnur vítaspyrna dæmd. Steinþór Már varði vítaspyrnu Arnþórs Hermannssonar en Hafþór Mar Aðalgeirsson var fyrstur að ná til boltans og jafnaði metin með skoti í fjærhornið. Dalvíkingar voru óheppnir að skora ekki sigurmarkið þegar tæpar tvær mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma, en skot þeirra hafnaði í þverslánni.
Liðin þurftu því að sættast á skiptan hlut í þessum æsispennandi knattspyrnuleik, lokatölur 3-3.
|
|
Leikur á morgun í Hleðslu-mótinu |
|
Written by Gunnar Már Magnússon
|
|
Friday, 20 January 2012 22:39 |
|
Á morgun, 21. janúar, mun D/R spila gegn Völsungi í Hleðslu-mótinu. Leikurinn hefst kl. 16:15 í Boganum og er annar leikur beggja liða í mótinu. Dalvík vann sína viðureign 5-0 gegn KA2 á meðan Völsungur tapaði gegn Þórsurum 4-1. Búast má við hörkuleik og hvetjum við sem flesta til að mæta og styðja við bakið á okkar mönnum. Brottför hjá Dalvíkingum frá N1 kl. 14:40! Mæting í Bogann kl. 15:15! Hópurinn: Stubbur, Hans, Viktor Már, Gunni, Bessi, Ísak, Hemmi, Snorri, Sindri, Jói Sveinbjarnar, Viktor Sæv, Úlfar, Sigþór, Reynir, Hilmar, Markús og Óli Ingi Giskaðu á rétt úrslit og markaskorara :)
Áfram Dalvík/Reynir!!
|
|
Written by Administrator
|
|
Tuesday, 17 January 2012 15:16 |
|
Æfing í kvöld, þriðjudaginn 17. janúar, í Boganum kl 21:00. Allir klárir í hlaup kl 20:30. Dalvíkingar mæta í N1 kl 19:40
|
|
|
|
|
|
|
Page 1 of 93 |