|
Written by Administrator
|
|
Wednesday, 18 August 2010 15:25 |
|
æfing í dag á ströndinni kl 18:30. Dalvíkingar kl 18:05 í N1 Eftir æfingu er mikilvægur fundur!
|
|
|
Umfjöllun: Lið Eiríks með sigur í körfunni |
|
Written by Administrator
|
|
Tuesday, 17 August 2010 23:20 |
|
Í kvöld var spilaður svakalegur körfuboltaleikur í Skápnum á Dalvík. Margir hverjir lögðu heilmikið undir og var góð stemning i hópnum, einn kom t.d keyrandi alla leið frá Siglufirði, annar tók vatnsberastarfið upp á annað level og flestir voru í flottum búningum. Deció bar af með afróið og greiðuna í hárinu. Leikar enduðu þannig að lið Eiríks vann 35-33 eftir dramatískan endi þar sem menn voru ekki allir sáttir. Vel var tekið á því og eins og áður sagði góð stemning í hópnum enda hafa menn gott af því að anda aðeins frá hversdagleikanum á fótboltavellinum. Næsta æfing á morgun, miðvikudag, kl 18:30 Á STRÖNDINNI! Frí á fimmtudag og svo aftur æfing föstudag. Myndir frá viðburðinum er að finna HÉR!


|
|
Gríðarleg spenna fyrir körfuboltaleikinn |
|
Written by Administrator
|
|
Tuesday, 17 August 2010 15:25 |
|
Körfuboltaleikurinn mikli fer fram í kvöld eins og öllum ætti að vera kunnugt. Leikið verður í Víkurröst eða Skápnum réttara sagt og hefjast leikar um 18:30.  Mikið hefur gengið á í félagskiptum og hafa menn verið duglegir að ræna mönnum á milli liða og gríðarlegur rýgur er í liðinu. Þessi leikur mun fara í sögubækurnar,það er nokkuð ljóst og ekki víst að mórallinn í liðinu verði sá sami eftir leik. Núna korteri fyrir leik gekk svarta perlan, Deció, til liðs við Viktor og félaga eftir óheiðarlega tilburði Viktors Más þar sem hann sniðgekk allar siðarreglur körfuboltans. Viktor fékk hinsvegar að kenna á því stuttu seinna þegar andstæðingarnir rændu Hilmari Daníelssyni yfir... sannkallaður krókur á móti bragði. Hilmar skirafði undir samning um þetta rétt áðan og fær hann meðal annars greitt í geldollum. Liðin eru því svona skipuð: Viktor, Snorri, Dessi, Gunni, Atli Ó, Halldór
Eiríkur, Markús, Kristinn, Hilmar, Hemmi, Raggi Einhverjir fleiri munu mæta og verður þeim komið fyrir í liðum að sjálfsögðu. Eftir leik verður ekki paintball heldur pizzuveisla inn í klefa.
|
|
Körfuboltaleikurinn mikli |
|
Written by Administrator
|
|
Monday, 16 August 2010 22:09 |
|
Á morgun, þriðjudaginn 17. ágúst, verður spilaður körfuboltaleikurinn sem allir hafa biðið svo lengi eftir. Heyrst hefur að miðasalan í forsölu sé að rjúka upp úr öllu valdi og lofað er All Stars sýningu á morgun í Skápnum. Leikurinn hefst kl 18:40 sirka og spilað verður að öllu óbreyttu 4x8mínútur. Öllum er að sjálfsögðu velkomið að koma og horfa á þennan mikla íþróttaviðburð sem mun eiga sér stað. Búið er að skipta í lið og mikill rýgur á milli manna fyrir þennan leik. Eftir leik verður stefnt að því að fara í paintball, það er þó óstaðfest enn en við stefnum að því.
|
|
Umfjöllun: Sigur í síðasta leik riðilsins |
|
Written by Administrator
|
|
Saturday, 14 August 2010 20:17 |
|
Í dag spilaði D/R gegn Leikni F. á Dalvíkurvelli. Leikið var við erfiðar aðstæður á Dalvík þar sem mikil riging var og völlurinn rennandi blautur. Frábært veður var hinsvegar, heitt og logn! Frábært fótboltaveður réttast sagt. Leikurinn byrjaði hinsvegar ekki vel fyrir D/R því þeir virtust þreyttir og þungir í byrjun. Fáir áhorfendur voru mættir á völlinn í byrjun leiks en fólk týndist inn þegar leið á. Fyrsta mark leiksins kom snemma leiks þegar Leiknis-menn fá aukaspyrnu á sínum eigin vallarhelmingi, taka hana fljótt og setja framherjann í gegn og þeir komast óvænt yfir í 0-1. Eftir þetta vaknaði lið D/R aðeins og náði fljótlega inn jöfnunarmarkinu þegar Kristinn fór upp vinstri vænginn og gaf fastann bolta fyrir sem hrökk af varnarmanni Leiknismanna og í netið. Sjálfsmark semsagt og staðan því orðin 1-1. Fjörið í fyrrihálfleik var ekki búið því Leiknis-menn ná að komast í 1-2 þegar þeir fá aukaspyrnu vel fyrir utan teig. Leikmaður þeirra tekur spyrnuna sem hafnar í varnarveggnum og breytir um stefnu en Atli Már markmaður D/R var kominn í hitt hornið, og því lak boltinn inn. Ótrúleg óheppni sem virtist ætla elta D/R í þessum leik. Staðan í hálfleik 1-2 fyrir Leikni F. Eftir hressilega hálfleiksræðu frá þjálfurum liðsins kom hressara D/R lið til leiks staðráðið að halda markmiði sumarsins sem var að tapa ekki leik á Dalvíkurvelli. Ragnar Hauksson skoraði jöfnunarmark D/R með góðum skalla á fjærstönginni eftir að Hermann tók aukaspyrnu út á hægri væng. Staðan því orðin 2-2 og D/R mun líklegra til að bæta við mörkum. Um miðbik seinnihálfleiks skoraði síðan Raggi sitt annað mark og sitt sjöunda á stuttum tíma eftir að hann slapp einn í gegn á móti markmanni Leiknis-manna og Raggi kláraði færið meistaralega með laglegri chippu yfir markmanninn. Staðan orðin 3-2 fyrir heimamenn og Leiknis-menn aldrei líklegir. Síðasta mark leiksins sáu Leiknismenn um sjálfir líkt og það fyrsta. Föst fyrirgjöf endaði í löppum varnarmanna Leiknis og þaðan í sitt eigið net. Annað sjálfsmark sumsé og lokatölur leiksins 4-2 flottur sigur.
Við sýndum það í þessum leik að menn þurfa alltaf að vera klárir í leikinn, hvaða leik sem er. Við erum að fara í gífurlega erfiða keppni núna á næsta leiti og ættu allir leikmenn að hugsa vel um sig þangað til.
Klár sigur í riðlinum. 31 stig í 12 leikjum. Snilld...
|
|
|
|
|
|
|
Page 3 of 76 |