|
Upphitun: Síðasti leikur riðilsins |
|
Written by Administrator
|
|
Friday, 13 August 2010 12:11 |
|
Á morgun, laugardaginn 14. ágúst, kl 15:30 spilar D/R sinn síðasta leik riðilsins og vonandi þann síðasta í riðlakeppni 3.deildar í langann tíma. Vonandi verður þetta tímamóta leikur þar sem við kveðjum þessa erfiðu riðlakeppni fyrir fullt og allt og höldum inn í úrslitakeppnina. Leikið verður við Leikni frá Fáskrúðsfirði.  
Leiknir F. eru með gríðarlega sterkt lið og hafa verið að ná fínum úrslitum í 3.deildinni þetta sumarið. Þeir eru í kjörstöðu til að fylgja D/R í úrslitakeppnina en til þess að það gerist verða þeir að vinna okkur á morgun. Það má því bóka það að þeir munu gera allt til þess að vinna leikinn. Sem stendur er Leiknir í 3 sæti riðilsins með 20 stig en Magni með 22 í örðu sæti. Það má því segja að það velti allt á þessum leik fyrir þessi tvö lið. Leiknis-menn spila kannski ekki skemmtilegasta fótboltann í deildinni en þeir hafa, eins og áður sagði, verið að ná góðum úrslitum. Fyrri leikur liðanna endaði með 2-2 jafntefli eftir að Leiknir hafi komist í 2-0 og DR jafnað undir lokin. Lið D/R er eins og áður sagt búið að tryggja sér 1.sætið í riðlinum og er það vissulega vel. Við óskum hér með öllum stuðningsmönnum, leikmönnum og stjórnarmönnum til hamingju með þetta fyrsta skref en það er hinsvegar nóg eftir og ennþá töluvert í land. Það má segjast að síðustu 2-3 leikir hjá D/R hafa verið í auðveldari kantinum og því kærkomið að fá einn svona alvöru leik fyrir úrslitakeppnina. Eitt að markmiðunum sem liðið setti sér fyrir sumarsins var að það kæmi ekkert lið á Dalvíkurvöll og hirti af okkur stig. D/R ætla að sjálfsögðu að standa við það og klára deildina með stæl og falla ekki niður á eitthvað annað þrep. Burt séð frá því hvaða úrslit henta öðrum liðum, við töpum ekki stigum á Dalvíkurvelli. Það er svo einfalt. Markús Darri mun taka út leikbann á morgun vegna 4 gula spjalda og hetjan mín hann Ísak Einarsson er ennþá meiddur. Annars ættu aðrir leikmenn að vera klárir í slaginn á morgun. Við höfum ekki ennþá unnið Leikni F. í sumar og þetta verður okkar síðasta tækifæri til þess.

Áfram D/R!!!
|
|
|
Written by Administrator
|
|
Tuesday, 10 August 2010 22:19 |
|
Næsti leikur gegn Leikni F. sem átti að fara fram á sunnudaginn næstkomandi hefur verið færður fram á Laugardaginn kl 15:30. Næsta æfing verður að öllu óbreyttu á Dalvíkurvelli kl 18:45 á Fimmtudaginn.
|
|
Written by Administrator
|
|
Tuesday, 10 August 2010 12:35 |
|
Æfingin í dag fer fram á Ströndinni kl 18:30. Akureyringar á sínum tíma í Ak-inn og Dalvíkingar 18:10 í N1. Eftir æfingu verður boðið upp á grillkjöt og með'í...
|
|
Written by Administrator
|
|
Friday, 06 August 2010 15:37 |
|
Í gærkvöldi komu Samherjar á Dalvíkurvöll og spiluðu gegn D/R. Leikið var við frábærar aðstæður og fullt af fólki á svæðinu. D/R hafði mikla yfirburði allann leikinn í gær og saga leiksins var sú að D/R sótti og sótti, brenndu af nokkrum ákjósanlegum marktækifærum og Samherja-menn varla fóru yfir miðju. Þetta virtist vera þeirra leikplan. Þeir ætluðu að tefja eins mikið og þeir mögulega gátu og þeir gerðu aldrei tilraun til að vinna þennan leik. Fyrsta mark leiksins gerði Gunnar Már Magnússon þegar hann fékk sendingu út fyrir teiginn og skoraði með flottu skoti í markhornið. Staðan í hálfleik var 1-0.
Annað mark leiksins gerði Markús Darri Jónasson með flottu skoti fyrir utan teig sem endaði í stönginni og inn. Staðan því orðin 2-0. Þriðja mark leiksins skoraði Ragnar Hauksson eftir að boltinn barst til hans inn í teig og hann skoraði af stuttu færi. Fjórða og síðasta mark leiksins gerði enginn annar en Davíð Deció Jóhannsson eftir að hafa fengið boltann inn í teig rétt fyrir framan markið og klárað vel.
Eins og áður sagði, algjörir yfirburðir allann tímann og úrslitakeppnin í höfn. Liðið: Hans (m) - Sigþór, Ingvar, Steini Sím (Eiki), Kiddi, Viktor, Jói(Snorri), Hemmi, Gunni(Atli Ó), Markús(Dessi), Bessi(Raggi) Minni menn á að standa sínar vaktir yfir fiskidaginn!!!
|
|
Upphitun: Fiskidagsleikurinn |
|
Written by Administrator
|
|
Wednesday, 04 August 2010 22:57 |
|
Á morgun, fimmtudaginn 5 ágúst, fer fram Fiskidagsleikurinn á Dalvíkurvelli. Að þessu sinni verða það Samherjar úr Eyjafjarðarsveit sem mæta á Dalvíkurvöll. Búast má við miklu fjöri á vellinum og fullt af fólki því tjaldsvæðin eru orðin troðfull og mikið líf í bænum. Leikurinn hefst kl 19:00  
Samherjar eru neðsta liðið í riðlinum okkar með aðeins 1 stig. Þeir eru eitt af þremur liðum í öllum deildum Íslandsmótsins sem hafa ekki ennþá unnið leik. Svona staðreyndir er hægt að telja upp lengi lengi en hinsvegar er bara ein staðreynd sem leikmenn D/R þurfa að rifja upp og hún er síðasti leikur liðanna sem fór fram á Hrafnagili. Þar var D/R í bölvuðu basli langt fram eftir leiknum en sigurinn kom þó fyrir rest! Svona lið er mjög auðvelt að vanmeta og vera búnir að vinna leikinn fyrirfram, en ljóst er að menn þurfa að hafa varann á þó svo að mikill munur sé á milli liðanna í riðlinum.
Í herbúðum D/R eru allir leikmenn liðsins klárir í slaginn og óðir í að hefja leik aftur eftir smá versló-frí. Með sigri á morgun gulltryggjum við sæti í úrslitakeppninni en þessi leikur er bara eitt þrep af mörgum sem við þurfum að taka í sumar. Það er alveg ljóst að þó svo að það verði 500 manns upp í stúku þá munu þau ekki sjá um að vinna leikinn. D/R hljóta því að koma dýrvitlausir til leiks og klára verkefnið með stæl. Það hefur verið flottur taktur í liðinu að undanförnu og eins og áður sagði eru allir heilir og klárir í slaginn. Mæting í sundlaugina á Dalvík kl 17:30. 
Brúinn stuðningsmannafélag ætlar að hita vel upp á morgun á Pizza Veró. Mæting þar er kl 17:30 og öllum boðið að sjálfsögðu. Þaðan verður síðan farið í skrúðgöngu á völlinn (í gegnum tjaldsvæðin). Farið verður frá Veró kl 18:30 sirka. ÁFRAM D/R!!!!!
|
|
|
|
|
|
|
Page 4 of 76 |