Home
Velkomin á Heimasíðu Dalvíkur/Reynis
Vaktaplan: Vantar á nokkrar vaktir!
Written by Administrator   
Tuesday, 03 August 2010 23:16

Svona lýtur vaktaplanið út fyrir fiskidaginn. Ennþá vantar á nokkrar vaktir og ef einhverjir eiga eftir að skrá sig mega þeir gjarnan hafa samband!

 

Tjaldsvæðisgæsla:

Fimmtuagurinn             16:00 – 20:00                     ??? og ?????
                                   20:00 – 00:30                    ??? og ????

Föstudagurinn:             12:00 – 16:00                     Jói H og Ísak E
                                  16:00 – 20:00                     Gunni og Hemmi
                                   20:00 – 24:00                    Atli Ó og Dóri
                                   24:00 – 04:00                    ??? og ????

Laugardagurinn:          08:00 – 12:00                   Snorri og ???
                                 12:00 – 16:00                  Arnar Hólm og Bessi
                                 16:00 – 20:00                  Dessi og ???
                                 20:00 – 24:00                 ??? og ?
                               00:00 - 04:00                    Viktor og Hans

Sunnudaginn:           08:00 – 12:00                    ??? og ???


Tónleikar og Ball:

Föstudagurinn (tónleikar)                   22:30 – 00:30 sirka

Vantar 3 menn á barinn og hálfgerða dyravörslu. Hægt er að semeina þessa vakt með tjaldsvæðisvörlu.

 

Laugardagskvöldið (ball)                  23:30 – 04:00                                   
Allir þurfa að mæta!!!

Allir leikmenn þurfa að mæta og vera við barinn og dyravörslu!
Kiddi, Gunni og Markús sjá um barinn en þurfa pottþétt aðstoð þegar mest reynir á.

 

Sturtusala:

Föst:                                     09:00 – 12:00
                                    17:00 – 19:00

Laug:                                    09:00 – 12:00
                                    17:00 – 19:00

Sun:                                    09:00 – 12:00


Þetta eiga Hilmar og Haukur að sjá um! Þeir geta fengið hjálp við þetta frá 3.fl strákum og Bjarni Gísla verður í kringum þetta.
Kostnaðurinn verður 300 kr inn

 

 
Vikan og Fiskidagar framundan
Written by Administrator   
Tuesday, 03 August 2010 00:05

Eins og menn vita vætnalega styttist í Fiskidagana. Þar mun D/R vera með nokkur stór hlutverk og leikmenn ÞURFA að taka sínar vaktir og gera það almennilega. Þetta er okkar stærsta fjáröflun og gríðarlega mikilvæg fyrir klúbbinn.

Raðað verður niður á tjaldsvæðisvaktir og allt hitt á morgun og menn sjá það á æfingu á þriðjudaginn.

Hér er stutt yfirferð yfir það sem D/R sér um:
- Gæsla á aðaltjaldsvæðinu (tjaldsvæðið, allt í kringum skólann og allt í kringum tónlistaskólann og Víkurröst).
- Innheimta á tjaldsvæðisgjaldi.
Við sjáum um að rukka inn á öll tjaldsvæðin á Dalvík. Það er bara eitt gjald fyrir alla helgina og byrjum við að rukka á miðvikudaginn og rukkað verður fram á föstudagskvöld. Eiríkur Páll verður með umsjón með því verkefni en hann þarf klárlega nokkra menn með sér.
- Sturtu sala.
Selt verður inn í sturturnar okkar í aðstöðunni. Yngrileikmenn plús strákar í 3. flokki munu aðalega sjá um það. Opið verður föstudags seinnipart, laugardags morgun og seinnipart, sunnudagsmorgun. Opið verður í sirka 3 tíma í senn.
- Tónleikar á föstudagskvöldið
Þar verður væntanlega Eyþór Ingi með Deep purple show. Þar þarf 3 menn á barinn og "dyravörslu".
- Ball á laugardagskvöldi
Hvanndalsbræður verða með ball. Þar þurfa nánast allir að vinna. Við þurfum menn í dyravörslu og á barinn. 

 

Æfing á Þriðjudag kl 18:30 á Dalvík.
Síðan æfing fyrir einhverja útvalda á miðvikudaginn.
Leikur gegn Samherjum á fimmtudaginn kl 19:00

 

 
Umfjöllun: Sigur og úrslitakeppnin 99% örugg
Written by Administrator   
Thursday, 29 July 2010 00:07

Í kvöld spilaði D/R gegn Draupni í Boganum á Akureyri. Blíðskapar veður var og og mátti vart greina eina þúfu á vellinum (Laddi).

    Fyrsta mark leiksins lét ekki bíða lengi eftir sér en það gerði fyrirliðinn Hermann Albertsson eftir að hafa fengið frábæra sendingu í gegnum vörnina kláraði Hemmi færið glæsilega með skoti í markhornið. Vel gert og leikurinn rétt orðinn 4 mínútna gamall.
    Eftir þetta hélt D/R áfram að spila flottann fótbolta og virtist á tímabili eins og það væri bara eitt lið á vellinum. Margar glæsilegar sóknir voru framkvæddar en því miður vildi boltinn ekki inn og menn pínu klaufar að bæta ekki við marki.
    Annað markið kom undir lok fyrrihálfleiks þegar Ragnar Hauksson skoraði flott mark eftir að hafa náð að klóra sig fram hjá varnarmönnum Draupnis. Staðan því orðin 2-0 og mjög stutt eftir að hálfleiknum.
    Undir lok fyrrihálfleik náðu Draupnis-menn hinsvegar að minka muninn þegar vörnin sofnaði hjá D/R eftir innkast.
Hálfleiksstaða því 1-2 fyrir D/R.


     Eftir snarpa hálfleiksræðu komu D/R beittir til leiks og staðráðnir í því að klára verkefnið og það all hraustlega. Draupnis-menn byrjuðu seinnihálfleikinn þó ágætlega og einhver smá skjálfti í liði D/R var þó fljótur að fara.
    Varamaðurinn Viktor Már Jónasson var rétt kominn inná þegar hann skoraði frábært mark. Brotið var á Viktori á miðju vallarins en hann var hinsvegar snöggur á fætur og dómarinn lét leikinn halda áfram, Viktor rauk af stað og sólaði nokkra og vann nokkrar tæklingar, en endaði herlegheitin með föstu skoti í fjærhornið. Flott framtak hjá Viktori.
    Eftir þetta var aldrei spurning hvor meginn sigurinn myndi lenda og D/R bætti í ef eitthvað var. Draupnis-menn ógnuðu marki okkar lítið og virtust þeirra sóknartilburðir aðalega ganga út á bomba boltanum fram á stóra og stæðilega sóknarmenn og það svosem gekk hjá þeim í nokkru skipti.
    Næsta mark leiksins var langþráð en það skoraði Kristinn Þór Björnsson eftir að hafa fengið boltann í hægramegin í vítateignum lagði hann boltann fyrir sig og kláraði með skoti upp í þaknetið.  Staðan því orðin 1-4 og lítill vindur í seglum Draupnis-manna.
    Fjórða og síðasta mark leiksins skoraði Jóhann Hilmar Hreiðarsson með hnitmiðuðu skoti fyrir utan teiginn í markhornið. Flott skot hjá Jóa sem kláraði leikinn. Jói átti síðan síðar í leiknum hörku skot sem stenfndi upp í sammann en ekki vildi betur til að Kiddi þvædist eitthvað fyrir og fékk boltann í bakið!

Lokastaða því 1-5 góður sigur. Sætið í úrslitakeppnina ætti að vera nokkuð öruggt þar sem Magna-menn þurfa að vinna alla sína og við að tapa með einhverjum stjarnfræðilegum tölum.

Liðið: Atli (m), Halldór, Eiki (Ingvar), Steini, Markús (Sigþór), Atli Ó (Viktor), Hemmi, Gunni, Kiddi, Bessi (Jói), Raggi (Snorri)

 

Næsta æfing er á mánudaginn kl 18:30 á Dalvíkurvelli. Ljóst er að menn þurfa að hafa aðeins hugann með sér um Versló og menn eiga að hreyfa sig sjálfir minnst 2 sinnum.
Skemmtið ykkur vel í fríinu...

Áfram D/R!

 
Upphitun: Dalvík/Reynir - Draupnir
Written by Administrator   
Tuesday, 27 July 2010 23:03

Á morgun heldur Dalvík/Reynir í sinn síðasta útileik í riðlakeppninni. Nú er ferðinni heitið til Akureyrar eða nánar tiltekið inn í Bogann. Spilað verður við Draupnis-menn og hefjast leikar kl 20:00.

Draupnis-menn eru staddir í 6. sæti riðilsins með 7 stig eftir 8 leiki. Þeir hafa verið að ná ágætis úrslitum að undanförnu og staða þeirra í riðlinum gefur einhvernveginn ekki rétta mynd af liðinu myndi ég segja.
    Flestir muna þó eftir síðasta leik liðanna þar sem D/R fór með nokkuð auðveldann 7-0 sigur af hólmi en nokkuð ljóst að sá leikur er búinn og munu Draupnis-menn koma með hefndarhug til leiks á morgun.
    Nokkrir leikmenn í þessu liði eru fyrrum leikmenn D/R og þrá þeir fátt heitara en að vinna D/R.

D/R hefur hinsvegar náð sér á góða siglingu aftur eftir tapið fyrir austan. 5-1 góður sigur í síðasta leik gefur mönnum kraft inn í þennan leik og með sigri förum við langt með að tryggja okkur inn í úrslitakeppnina. Ljóst er að við þurfum að sjálfsögðu að gefa okkur alla í verkefni því bæði Magni og Leiknir F. eru farin að banka á dyrnar hjá okkur.
    Allir leikmenn D/R eru heilir og klárir í slaginn og því er ljóst að það er verðugt verkefni að velja bæði í liðið og hópinn.

Vonandi sjáum við sem flesta á leiknum. Við þurfum stuðning, það er deginum ljósara!
Áfram Dalvík/Reynir!!!

 

Leikmenn:
Mæting inn í Bogann kl 18:45. Dalvíkingar í N1 kl 18:00 (Farið á einkabílum).

 
æfing í dag
Written by Administrator   
Tuesday, 27 July 2010 13:18

Æfingin í dag verður á Ströndinni kl 17:40.

Ak-inn 17:00 og N1 Dalvík 17:10.

 
More Articles...
« StartPrev12345678910NextEnd »

Page 5 of 76