Home
Velkomin á Heimasíðu Dalvíkur/Reynis
umfjöllun: Sanngjarn sigur í gær
Written by Administrator   
Saturday, 24 July 2010 12:15

Í gærkvöldi tók D/R á móti Einherja á Dalvíkurvelli. Leikir var við vægast sagt frábærar aðstæður en 20+ stiga hiti var nánast allann leikinn og logn. Völlurinn var flottur og fullt af fólki í stúkunni.

     Leikurinn byrjaði mjög vel fyrir D/R en strax eftir 6. mínútur skoraði Ragnar Hauksson sitt fyrsta mark fyrir D/R þegar hann fékk góða sendingu utan af vinstri væng beint á kollinn og Raggi kláraði færið virkilega vel með flottum skalla. Sannkölluð draumabyrjun hjá D/R.
     Eftir þetta datt tempó D/R niður um heilan helling og voru menn í hinum ýmsustu vandræðum. Framherji Einherja-manna gerði vörn okkar hvað eftir annað lífið leitt og sólaði varnarmenn okkar hægri vinstri án þess þó að skapa einhverja hættu.
Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir D/R.

 

     Í seinnihálfleik kom allt annað lið D/R til leiks eftir skarpa hálfleiksræðu frá trommaranum. Seinnihálfleikurinn byrjaði á svipaðan hátt og sá fyrri en D/R setti annað mark mjög snemma eftir að Markús Darri Jónasson fékk sendingu inn í teiginn frá hægri og kláraði færið með góðu innanfótarskoti á lofti.
    Eftir þetta var nokkuð ljóst hvar sigurinn myndi lenda og ljóst var að D/R var mun líklegra til að bæta við mörkum frekar en þeir að minnka muninn. Þriðja mark leiksins gerði Ragnar Hauksson eftir að aukaspyrna var tekin fljótt upp í horn, þaðan fyrirgjöf frá vinstri og þar var Raggi mættur og kláraði færið vel. Virkilega hröð og snörp sókn sem endaði með flottu marki sem kom okkur í 3-0.
    Fjórða mark leiksins gerði varamaðurinn Gunnar Már Magnússon eftir að leikmenn D/R komust upp að endamörkum og gáfu boltann fyrir markið og þar var Gunni mættur og kláraði með flottu skoti. 4-0.
     Síðasta mark okkar manna skoraði enn og aftur hinn magnaði Ragnar Hauksson eftir að hafa sloppið einn í gegn og klárað færið frábærlega fram hjá markmanni gestanna. Með þessu marki tryggði Raggi sér þrennuna í leiknum og fagnaði með því að setja nýtt íslandsmet í hástökki bak við markið. Til gamans má geta að Raggi er fyrsti leikmaður D/R til að skora þrennu í sumar þrátt fyrir að menn hafi verið mjög nálægt því oft.
    Þarna inn á milli náðu Einherja-menn að pota inn einu marki, en sigurinn var klár.

5-1 heimasigur. Flott úrslit.

Liðið: Atli (Hans), Ingvar, Eiki, Steini, Sigþór (Kiddi), Viktor, Jói (Halldór), Snorri (Atli Ó), Markús, Bessi (Gunni), Raggi

 

Frábær sigur og geðveik stemmning á vellinum. Takk fyrir stuðninginn og er þetta vonandi það sem koma skal í þessum heimaleikjum sem eftir eru!

1. sætið er okkar !!!   ÁFRAM D/R

 
upphitun: D/R - Einherji
Written by Administrator   
Thursday, 22 July 2010 22:38

Á morgun fer fram leikur á Dalvíkurvelli, loksins loksins. Langt er síðan síðasti leikur var spilaður á Dalvík en nú geta stuðningsmenn liðsins mætt á völlinn og horft á sína menn. Leikurinn hefst kl 20:00 á föstudagskvöldinu.

 

     Einherja-menn hafa verið í smá ströggli að undanförnu en liðið hefur ekki náð á fylgja á eftir góðum árangri á síðasta tímabili. Hinsvegar má aldrei afskrifa lið eins og Einherja því þeirra styrkleiki er klárlega barátta og spila þeir af mikilli hörku og djöflagangi.
     Þeirra sterkustu menn eru líkt og í fyrra markmaðurinn sem er að erlendu bergi brotinn, báðir miðverðirnir hjá þeim þeir Bjarni Þorsteinsson (fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður) og Davíð Örvar Ólafsson (sonur Óla Jó) og síðan fengu þeir nýjan útlending í sóknina fyrir tímabiliið. Með þessum mönnum hafa þeir unga stráka sem berjast eins og ljón.
     Einherji er sem stendur í 5 sæti riðilsins með 9 stig, en þeir eiga leik til góða á hin liðin sem eru fyrir ofan þá.

     Í herbúðum D/R ættu flest alliir að vera klárir í slaginn fyrir utan meiðslapésana Hilmar Dan og Ísak Einarsson. Þeir verða báðir frá í einhvern tíma. Þess fyrir utan eru allir heilir og ljóst er að hópurinn er stór og sterkur.
    D/R tapaði í síðasta leik á móti Huginn á Seyðisfirði í ótrúlegum leik en nú fyrst reynir á liðið. Við biðjum því alla íbúa Dalvíkurbyggðar um að mæta á völlinn og styðja strákanna til sigurs á morgun.
    Í kvöld datt D/R niður í 2. sæti riðilsins því Leiknir F. áttu leik í kvöld gegn Huginn. Sá leikur vannst hjá Leikni og eru því þá komnir á toppinn, allaveganna í bili. Þetta er klárlega ekki eitthvað sem leikmenn D/R ætla að láta viðgangast og munu þeir mæta dýrvitlausir til leiks á morgun.

Stuðningsmannafélagið Brúinn ætlar að hittast á Pizza Veró á morgun kl 19:00. Öllum er að sjálfsögðu heimilt að mæta þangað.
Pizza Veró verður með pizzur og gos til sölu á leiknum og einnig verður Haukur Snorrason með ís-krap til sölu á leiknum.

Við treystum á góðan stuðning frá stúkunni á morgun. Hjálpumst öll að settu markmiði!!

ÁFRAM D/R!!!!!!

Leikmenn: Mæting í Ak-inn kl 17:00. Dalvíkingar mæta í N1 kl 17:10. Mæting heim til Garðars í Te&rist kl 17:30.

 
Mýrarboltinn snemma í ár!
Written by Administrator   
Sunday, 18 July 2010 00:44

Sannkallaður drulluslagur fór fram á Seyðisfirði í dag þar sem D/R heimsótti Huginn. Fyrir leikinn var D/R á toppnum og ekki búnir að tapa leik.

Leikurinn hófst fjörlega í mígandi rigningu og völlurinn var eitt drullusvað. D/R lenti 1-0 undir eftir mark sem lyktaði illa af rangstöðu. Eftir þetta setti D/R í fluggírinn og náði að jafna metin stuttu seinna en þar var að verki Jóhann Hreiðarsson með skoti sem endaði niðri í markhorninu.
     Eftir þetta var D/R mun sterkari aðilinn og endaði það með því að Viktor Már Jónasson náði að koma boltanum inn fyrir marklínuna eftir að hann fékk sendingu inn fyrir vörnina frá Hemma, og Viktor fór framhjá markmanninum og skoraði. Flott mark.
    Undir lok fyrrihálfleiks ná Hugins-menn að jafna eftir klaufagang í okkar vörn og staðan í hálfleik var því 2-2.


     Ljóst var að áhorfendur á Seyðisfirði voru að fá fyrir allan peninginn því snemma í seinnihálfleik kemst D/R í 3-2 eftir skondið sjálfsmark. Þarna héldu kannski margir að D/R myndi loksins ganga á lagið og klára þennan leik en sú varð ekki raunin.
    Völlurinn versnaði og það hélt áfram að rigna og mörkin voru ekki hætt heldur! Hugins-menn ná að jafna í 3-3 með skalla eftir horn þar sem D/R klikkar í dekkningu og skömmu seinna komast þeir yfir 4-3.
     D/R voru þó mun sterkari aðilinn áfram og miklu líklegri til að skora. Jóhann Hreiðarsson, títt nefndur, skoraði sitt annað mark í leiknum þegar hann tók sig til og smurði boltann í slánna, stöngina og inn úr aukaspyrnu sem var vel fyrir utan teig. Vikrilega flott mark og hefði svo sannarlega átt að vera sigurmark eða allaveganna "tryggja" stigið.
    Því miður náðu Hugins-menn að komast enn og aftur yfir (já ég veit að þetta er farið að líkjast lýsingu á handbolta leik).
Eftir þetta sóttu leikmenn D/R stanslaust og áttu meðal annars skot í þverslánna, í bakið á markmanninum og yfir, skot rétt framhjá stönginni og færi einn á móti markmanni sem endaði framhjá.
Allt kom fyrir ekki og fyrsta tap D/R staðreynd, 5-4.

Núna reynir aðeins á karakterinn í liðinu því nú sést úr hverju menn eru gerðir.

Liðið: Atli, Ingvar(Halldór), Eiki, Ragnar, Kiddi, Snorri, Markús(Bessi), Jói, Hemmi, Viktor, Gunni(Atli Ó).

Næsta æfing á Dalvík kl 18:30 á mánudaginn.

 
Upphitun: Seyðisfjörður á morgun
Written by Administrator   
Friday, 16 July 2010 23:04

Snemma í fyrramálið heldur Dalvík/Reynir út í óvissuna í síðustu langferðina í riðlinum. Áfangastaðurinn verður Seyðisfjörður að þessu sinni og ætlum við að taka 3 stig af Hugins mönnum.

Hugins-menn gerðu okkur lífið leitt í fyrra með því að vinna okkur tvisvar sinnum á heimavelli og koma þ.a.l í veg fyrir að við færum í úrslitakeppnina. Þeir fóru þangað sjálfir eftir að hafa verslað sér nýtt lið með fullt af útlendingum, en þeir komust ekki áfram í úrslitakeppninni og eru því áfram í 3.deildinni. Þetta árið hafa þeir spilað upp og ofan. Þeir eru í 4 sæti riðilsins með 9 stig, en þetta er þó þéttur pakki fyrir neðan D/R.
Þeir hafa alltaf verið mjög erfiðir heim að sækja og núna má segja að þessi leikur sé þeirra síðasti séns ef þeir ætla sér að vera í þessari toppbaráttu.
Þeir hafa styrkt sig nokkuð af útlendingum og þá aðalega bretum að mér skilst.

Dalvík/Reynir hefur hinsvegar verið að sigla nokkuð lygnann sjó í deildinni, taplausir og með sigur á bakinu úr mörgum útileikjum í röð. Skemmtilegur mórall er í liðinu sem sást bersýnilega í sjóstöng í vikunni og ekki má gleyma að liðinu hefur borist góður liðsstyrkur núna í glugganum.
    Hinsvegar eru ekki allir heilir en bæði Sigþór og Steini Sím fara ekki með og Hilmar og Ísak E eru ennþá meiddir. Það kemur samt maður í manns stað og hópurinn er breiður og góður.

Leikmenn mæta í N1 á Dalvík kl 07:30 og Leiruna kl 08:00 í fyrramálið.

Gríðarlega mikilvægur leikur á morgun og vona ég að undirbúningur sé í hámarki hjá leikmönnum.

Spurning hvort einhverjir stuðningsmenn verði á svæðinu, það yrði gaman að heyra í Brúar-liðunum!

 
3 nýjir leikmenn í Dalvík/Reyni
Written by Administrator   
Friday, 16 July 2010 16:23

Dalvík/Reynir hefur styrkt leikmannahóp sinn til muna í dag en 3 nýjir leikmenn hafa félagsskipti yfir til Dalvíkur. Félagsskiptaglugginn á Íslandi opnaði á miðvikudaginn og ljóst er að D/R nýtti þann glugga vel. 
Leikmennirnir sem skipta yfir til Dalvíkur eru:

Bessi Víðisson: Bessi ætti að vera flestum Dalvíkingum kunnugur en hann kemur til liðs við okkur á láni frá Keflavík. Bessi er samningsbundinn Keflavík en hefur í sumar verið á láni hjá Fjarðarbyggð. Hann ákvað hinsvegar í dag að slíta þeim lánssamningi og koma heim til mömmu.
Bessi spilaði með Dalvík/Reyni fyrir 2 árum. Hann er fæddur árið 1990 og er sonur Rósu Ragúels og Víðis.
Frábært að fá Bessa aftur heim!

 

Arnar Hólm Einarsson: Arnar Hólm ætti að vera Dalvíkingum kunnugur en hann er uppalinn hér á Dalvík og æfði með Dalvík upp yngriflokkana. Arnar hefur undanfarin ár búið að höfuðborgarsvæðinu og spilað fyrir Hauka og nú síðast Álftanes í 3.deildinni.
Arnar er fæddur árið 1990 og er sonur Brynju klippara og Einars bakara! Gaman að því...

 

Ragnar Haukur Hauksson: Ragnar Hauksson kemur til D/R á lánssamningi út sumarið frá grönnum okkar í KS/Leiftri. Ragnar hætti fyrr í mánuðinum sem spilandi þjálfari þeirra og ákvað að skipta yfir til D/R þrátt fyrir áhuga frá öðrum liðum í efri deildum.
Ljóst er að Raggi er gríðarlegur liðsstyrkur fyrir D/R en hann var meðal annars markahæstur í annari deildinni í fyrra með 18 mörk.
Ragnar sem er sóknarmaður að upplagi hefur einnig brugðið sér aftur í miðvörðinn með góðum árangri. Hann var valinn í lið ársins í 2.deildinni í fyrra.

 

 

 

 

 

Frábærar fréttir fyrir Dalvík/Reyni og ljóst er að þetta mun hjálpa liðinu í komandi baráttu. 
Velkomnir til liðs við D/R!

 
More Articles...
« StartPrev12345678910NextEnd »

Page 6 of 76