Home
Velkomin á Heimasíðu Dalvíkur/Reynis
Sjóstangveiðimót D/R 2010
Written by Administrator   
Friday, 16 July 2010 09:36

Eitt til að byrja með: Æfing í dag á Dallas kl 18:05. Ak-inn 17:30.

Í gærkvöldi fór fram Sjóstangveiðimót D/R 2010 og var þáttaka framar vonum. Gríðarleg stemmning myndaðist um borð og keppnisskapið að sjálfsögðu í hámarki. Það náði svo miklu hámarki að vísa þurfti einu liði úr leik.
Dregið var í lið um borð og voru 2 saman með eina stöng.http://www.dalvik-reynir.is/administrator/index.php?option=com_content&task=edit&cid[]=505

Að lokum voru vinningsliðin verðlaunuð. Verðlaunin lentu á eftirfarandi liðum:
1 sæti (flestir fiskar): Björn Friðþjófsson og Tryggvi Höber!
2 sæti:    Hermann Albertsson, Heiðar Máni Hermannsson og Ingvar Gíslason!
3 sæti:    Atli Már Rúnarsson og Hans Beck!

Hetjur hafsins:    Snorri Eldjárn og Atli Óla (veiddu 2 fiska í tveggja og hálfstíma sjóstangveiði, afrek!)
Stærsti fiskurinn:    Hilmar Daníelsson og Haukur Snorrason.
Minnsti fiskurinn:    Björn F. og Tryggvi Höber!

Í boði voru glæsileg verðlaun á borði við húfur og bakpokar frá húsasmiðjunni, tommustokkur fyrir stærsta fiskinn, jólaskraut sem verðlaunapeningar, armkútar fyrir Hetjur hafsins og svo að sjálfsögðu risa bikar fyrir sigurliðið. Allir fengu líka innplastað verðlaunaskjal sem gaman væri að sjá upp á vegg inn í klefa.

Eitt lið var dæmt úr leik en það voru að sjálfsögðu svindlararnir Eiríkur Páll og Markús Darri. Kemur lítið á óvart.

Myndir eru komnar inn á netið.... HÉR!!!

 

 

 
Fimmtudagsplan
Written by Administrator   
Wednesday, 14 July 2010 12:08

Frí á æfingu í dag, miðvikudag.

Næsta æfing er á fimmtudaginn kl 18.30 stundvíslega á Ströndinni!!!! Ak-inn kl 18:00 og N1 Dalvík 18.05.
Æfingin verður stutt og snörp en eftir æfingu verður farið á sjóstöng með Níelsi Jónssyni EA 106. Um borð verða grillaðir burgerar ásamt því að dregið verður í lið (2-3 saman í liði með eina stöng) og keppni. Ýmis verðlaun verða í boði...

ATH menn þurfa að sjá sjálfir um drykki með burgernum! Komið vel klæddir!

Mætum nú allir og gerum okkur dagamun.

 

 

 
Myndir úr Magna-leiknum
Written by Administrator   
Tuesday, 13 July 2010 11:41

Bjarni Gunnarsson sérlegur ljósmyndari heimasíðunnar skellti sér til Grenivíkur í blíðunni og smellti nokkrum myndum af leiknum.

Hægt er að skoða myndirnar hans Bjarna HÉR

 

Annars æfing í dag, Þriðjudag, á Dalvíkurvelli kl 18:30.
Síðan væntanlega frí á miðvikudag og aftur æfing fimmtudag.

 
Æfingar í vikunni
Written by Administrator   
Monday, 12 July 2010 12:44

Æft verður nokkrum sinnum í þessari viku fram að leik. Talað var um 3-4 æfingar í þessari viku.

Fyrripart vikunnar verður æft á Dalvíkurvelli en seinnipart væntanlega á Ströndinni.

Mán:  Æfing á Dalvík kl 18:30. Ak-Inn kl 18:00.

 

Síðan ætlum við að stefna á að gera eitthvað sniðugt saman í þessari viku ef veður leyfir s.s sjóstöng eða laserTag/Paintball...

 
Umfjöllun: Sigur á Grenivík
Written by Administrator   
Thursday, 08 July 2010 23:54

Í kvöld áttust við Magni frá Grenivík og Dalvík/Reynir. Leikið var í frekar leiðinlegu veðri á Grenivík. Rok, kalt og rigning!

     Magna-menn byrjuðu leikinn með sterkann vind í bakið og réðu miklu á vellinum til að byrja með án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Þeir náðu samt sem áður forystunni í leiknum eftir sofandagang í vörn D/R. Þannig var staðan í hálfleik 1-0 fyrir Magna.

      Eftir hressilega hálfleiksræðu frá þjálfurunum kom allt annað D/R lið inn á völlinn og náðu leikmenn að pressa mun hærra á vellinum með vindinn í bakið. Nokkur ákjósanleg marktækifæri fóru forgörðum en það var hinsvegar Viktor Már Jónasson sem tók sig til og negldi boltanum, vel fyrir utan vítateig, í slánna - niður í jörðina - upp í slánna aftur og í markið. Frábært mark hjá Viktori.

Eftir þetta mark var D/R mun líklegra til þess að bæta við mörkum heldur en andstæðingarnir. Nokkur harka kom í leikinn og þónokkur gul spjöld fuku á loft á bæði liðin.
Það var hinsvegar undir lokin sem varamaðurinn Atli Þór Ólason skoraði með sinni fyrstu snertingu eftir að hann fylgdi vel á eftir skoti sem markmaður þeirra náði ekki að halda, og Atli manna fyrstur á svæðið og tækla boltann yfir línuna. Staðan því orðin 1-2 og þannig endaði leikurinn.

liðiið: Hans (Atli Már, 45mín), Ingvar, Steini sím, Eiki, Sigþór, Viktor, Snorri, Hemmi, Markús (Halldór), Kiddi (Atli), Gunni (Dessi).

Flottur sigur, takk fyrir stuðninginn!

 
More Articles...
« StartPrev12345678910NextEnd »

Page 7 of 76