|
Á morgun, fimmtudaginn 8. júlí, fer fram nágrannaslagur á milli Magna frá Grenvík og Dalvík/Reyni. Flautað verður til leiks á Grenivík kl 20:00 og hvetjum við að sjálfsögðu sem allra flesta til þess að koma á leikinn.  
Magnaðir-Magna menn hafa að undanförnu verið að ná mjög fínum úrslitum og berjast eins og ljón. Fyrir tímabilið fengu þeir inn 2-3 nýja útlendinga sem hafa hægt og rólega verið að koma sér í stand og venjast liðinu. Ljóst var í vetur að Magna-liðið leit hræðilega út og unnu D/R þá meira að segja 8-0 í einum æfingaleiknum ef mig misminnir ekki. Hinsvegar er það ljóst að þetta lið er ekkert grín lengur með tilkomu nýrra manna. D/R hefur nú þegar spilað einu sinni við Magna í sumar en það var í fyrsta leik sumarsins á Árskógsvelli og endaði sá leikur með 2-0 sigri D/R í mjög erfiðum leik. Það er því alveg kristal tært að menn þurfa að vera í toppstandi á fimmtudaginn ef DÞ/R ætla að ná takmörkum sínum í sumar. Magni er í hörku baráttu í riðlinum en þetta er þónokkuð þéttur pakki, en eins og staðan er í dag eru þeir í 4. sæti með 7 stig en eiga leik til góða á næstu lið sem eru með 9 og 11 stig. Það er því ljóst að þeir geta blandað sér í toppbaráttunna aftur með sigri. Nú síðast fóru þeir á Seyðisfjörð þar sem flautað var af í hálfleik vegna rigningar! Dalvík/Reynir hefur aftur á móti verið í smá lægð að undanförnu. Þrátt fyrir 4-0 sigur á Samherjum og 2-2 jafntefli gegn Leikni F. í síðustu leikjum hafa liðsmenn ekki verið sáttir við sinn leik og ljóst er að það er komið gott af þeim slappleika sem hefur verið að hrjá liðið. Menn ætla sér stóra hluti í sumar og verður þessi leikur eitt stórt skref í þá átt sem D/R stefnir. Flest allir leikmenn liðisns ættu að vera heilir eftir þessa góðu pásu sem við höfum fengið. Reyndar er varnarjaxlinn Ísak "Hulk" Einarsson meiddur og ekki er ljóst hvenær hann mun snúa aftur í liðið, og Hilmar Daníelsson á við nárameiðsli að stríða. Eiríkur Páll er hinsvegar búinn að jafna sig í mallakútnum og kemur aftur inn í liðið frá síðasta lei k. FRÍ RÚTA Á LEIKINN!!!!!! Stjórn knattspyrnudeildar D/R hefur ákveðið að bjóða stuðningsmönnum D/R upp á fría rútu á leikinn. Þá erum við ekki að tala um neina hefðbundna langferða-rútu heldur tveggja hæða "London Bus". Rútan tekur 68 manns í sæti og nú þegar hafa flest öll sætin verið pöntuð. Hinsvegar eru nokkur sæti laus og hægt er að panta þau hjá Magna Þór í síma 847-9849 (eftir kl 5 á daginn). Krakkar 12 ára og yngri verða að vera í fylgd fullorðna. ATH. Fólk þarf að hafa með sér penginn á völlinn því samkvæmt heimildum ætla Magna-menn að rukka inná sinn stórskemmtilega völl... Rútan fer kl 17:30 frá Víkurröst á Dalvík. Rútan verður í boði diggra stuðningaðila sem eru: Tréverk ehf, Húsasmiðjan, Leikmannaráðs M.fl og svo stjórn Knattspyrnudeildar D/R.
Tippleikur D/R: Tippaðu á rétt úrslit og markaskorara í kommentum hér að neðan og þú gætir unnið glæsilega vinninga! Brottför hjá leikmönnum er kl 18:00 frá AK-INN en Dalvíkingar mæta 17:15 í N1 Dalvík. ÁFRAM D/R!!!!!!!!! Sjáumst á Grenivík
|