Home
Velkomin á Heimasíðu Dalvíkur/Reynis
Bis morgen!
Written by Administrator   
Thursday, 24 June 2010 22:01

Æfing á morgun á Dalvíkurvelli kl 18:00.

Ak-inn 17:15.

 
Aftur á morgun
Written by Administrator   
Wednesday, 23 June 2010 22:39

Aftur æfing á Ströndinni á morgun kl 18:30

 

Ak - inn 18:00 og Olís 18:05...

Sjáum svo til með föstudaginn síðan gríðar mikilvægur leikur á laugardag

 
Æfing á morgun
Written by Administrator   
Tuesday, 22 June 2010 20:49

Jæja. Kominn tími til að menn setji tappa í ákveðin göt og hætti að drekka úr brúsunum ef það sé málið.

Æfing á morgun á ströndinni kl 18:30. Ak-inn 18:00 og Olís 18:05.

 

Byrja strax að undirbúa sig fyrir laugardaginn! Mikilvægasti leikur sumarsins...

 
Umfjöllun: Sigurgangan heldur áfram!
Written by Administrator   
Saturday, 19 June 2010 00:19

Í dag spilaði D/R gegn Samherja á Hrafnagili. Spilað var við flottar aðstæður, sléttur og fínn völlur og frábært veður. Slatti var að áhorfendum á vellinum í dag en mestmegnis voru það fylgismenn D/R og þá aðalega Brúa-liðar sem stóðu sig frábærlega að vana.

 

Fyrrihálfleikurinn var hinsvegar einn sá daufasti og slakasti sem D/R hefur spilað og ekki verður eytt mörgum orðum í umfjöllun um hann. Staðan í hálfleik var 0-0 og bæði lið voru búin að fá ákjósanleg færi til að skora.

Í seinnihálfleik kom hinsvegar allt annað lið D/R til leiks og voru menn ákveðnir í að standa sig og halda sigurgöngunni áfram.  Í fyrrihálfleik var engin leikgleði og mætti halda að liðsmenn D/R hafi vanmetið andstæðinga sína.
Í seinnihálfleik skánaði þetta þó helling og fyrsta mark leiksins kom fljótlega og það gerði Gunnar Már með fallegu skoti sem kom eftir hornspyrnu. Annað mark leiksins skoraði hinn margreyndi Steinn Símonarsson með skalla eftir aukaspyrnu. Eftir þetta leið þónokkuð þangað til þriðja markið kom en það gerði varamaðurinn Markús Darri eftir að hann fékk sendingu innfyrir vörnina og hann kláraði færið vel á fjærstönginni. Markús var ekki hættur því undir lok leiksins bætti hann öðru marki við þegar hann fylgdi á eftir skoti og skoraði af stuttu færi.
Undir lok leiksins fengu Samherja-menn vítaspyrnu en Hans Beck, markmaður D/R, kórónaði fínann leik sinn með því að verja spyrnuna og D/R hefur því aðeins fengið eitt mark á sig í deildinni (og það var úr víti) og eru með fullt hús stiga.

Þannig endaði leikurinn. 4-0 sigur.

Hans, Ísak E (Halldór), Steini Sím, Eiki, Sigþór, Snorri (Atli Óla), Viktor, Gunni, Kiddi, Jói (Markús), Hemmi (Hilmar).

 

Morgundagurinn:

Golfmót D/R hefst á golfvellinum út í sveit kl 16:00.
Þaðan verður haldið í Reynis-húsið og við grillum (menn þurfa að koma með sitt eigið kjet og meðlæti) Hægt að fara í pottinn og hafa það gott.
Eftir það er stefnan sett á Akureyri og mun hún svo fara heim til Dalvíkur seinna um nóttina.

 
Upphitun: Hrafnagil á morgun
Written by Administrator   
Thursday, 17 June 2010 21:04

Á morgun heldur Dalvík/Reynir í ferðalag alla leið á Hrafnagil í Eyjafjarðasveit. Þar ætlar liðið að spila við Samherja og hefst leikurinn kl 19:00.

 

Dalvík/Reynir og Samherjar mættust í fyrstu umferð VISA-Bikarsins snemma í sumar og enduðu leikar með 7-2 sigri D/R. Hinsvegar hafa Samherja-menn verið í mikilli uppsveiflu og náð ágætis úrslitum í síðustu tveimur leikjum þrátt fyrir að tapa. Samherjar eru samt sem áður neðsta liðið í riðlinum með 1 stig.
Eins og við þekkjum ágætlega er þetta lið sem er með nokkra mjög svo frambærilega fótboltamenn og þeir geta farið langt á baráttunni. Einnig er þetta þeirra fyrsti heimaleikur þannig að við megum eiga von á hörkuleik á Hrafnagili á morgun.

Allir leikmenn D/R ættu að vera tilbúnir í slaginn fyrir utan Ingvar Gísla sem er í fríi. Dalvík/Reynir hefur byrjað mótið með glæsibrag en auðvelt er að eyðileggja gott "run" með tapi í svona leikjum. Það er því lífsnauðsynlegt að leikmenn D/R haldi áfram að koma tilbúnir í leiki og haldi áfram þessum baráttu vilja sem skín úr augum leikmanna inn á vellinum.

 Leikmenn eiga að mæta út á Hrafnagil kl 17:30. Dalvíkingar mæta í Olís kl 16:40.

 

 

Heyrst hefur að Stuðningsmannafélagið Brúinn ætli að fjölmenna á leikinn á morgun. Þeir ætla að hittast við Víkurröst kl 18:00 á morgun og raða í bíl. Ef einhverjir Dalvíkingar ætla á leikinn yrði vel þegið ef fólk myndi koma við og gá hvort það væri hægt að sameina eitthvað í bílana.

 

Áfram D/R

 
More Articles...
« StartPrev12345678910NextEnd »

Page 9 of 76