Home
Velkomin á Heimasíðu Dalvíkur/Reynis
Skuldir - örfáir eftir
Written by Administrator   
Tuesday, 15 June 2010 09:03

Hey... borga!!

Hér er listinn:

Atli Óla - Æfingafatnaður 7000, skór 5000, sektir 700 og gömul sekt 1500 

Markús - skuldar skónna 5000

Viktor F - Æfingafatnaður 7000, 

Örvar - Æfingafatnaður 7000

 

Borga þetta í dag eða morgun! Ekki seinna...

rkn: 1177-05-403320
kt: 111189-3319

 

 
Tölfræði frá síðasta sumri
Written by Administrator   
Monday, 14 June 2010 10:21

Síðustjóri áttaði sig á alvarlegum mistökum sem áttu sér stað undir lok síðasta tímabils þegar þáverandi aðstoðarþjálfari sendi okkur tölfræði frá síðasta sumri. Hann skráði allt  samviskusamlega niður þegar hann sat á bekknum og stjórnaði leikjum.
Ekki laust við að leikmenn D/R sakni hans töluvert á æfingum því þarna er á ferðinni skemmtilegur karakter og feykiöruggur bílstjóri. Við skorum hér með á Elmar að fara láta sjá sig á æfingum í takkaskóm!

Einhverra hluta vegna birtist þessi tölfræði aldrei á netinu en ég rakst á hana í dag og ákvað að setja hana inn. Menn gætu haft gaman að þessu...

 

Í nær öllum leikjum skráðum við niður ýmsa tölfræði og finnst mér eðlilegt að birta eitthvað af henni til gamans.

Marktilraunir = 226 eða 13 í hverjum leik (bikarleikir meðtaldir).

57% fara á markið.

43% fara framhjá.

16% eða 1 af hverjum sex fer í netið.

29% tilrauna sem fara á markið enda í netinu. Það þýðir að leikmenn D/R þurftu að hitta markið 3-4 sinnum til að skora.

 

Fjöldi stoðsendinga og 2nd assist einnig.

Gummi 10

Gunni 8

Jói 7

 

Birt með fyrirvara því eitthvað hefur pottþétt gleymst eða yfirsést.

Takk fyrir sumarið, frábært lokahóf og drífum Dalvík/Reyni í 2. deild.

 

Elmar Sindri.

 

 
Umfjöllun: Glæsilegur sigur í gær
Written by Administrator   
Friday, 11 June 2010 17:04

Dalvík/Reynir spilaði gegn Draupni í gær á Dalvíkurvelli. Leikurinn hófst kl 20:00 og var spilað við flottar aðstæður á Dalvíkurvelli. Ný markatafla var vígð og má segja að hún hafi haft nóg að gera í fyrsta leiknum.

Í virðingaskyni við mótherja okkar verður ekki sett inn neina svakaleg umfjöllun. Nóg er að segja að við höfum sent Draupnis-menn tómhenta heim og það all hraustlega því leikurinn endaði með 7-0 sigri D/R. Með þessu sýndum við að ekkert lið mætir á okkar heimavöll og tekur stig frá okkur!
Framundan eru 4 erfiðir útileikir og í þeim sést úr hverju liðið okkar er gert. 

Dalvík/Reynir 7 - 0 Draupnir
1-0 Viktor Már Jónasson
2-0 Snorri Eldjárn Hauksson
3-0 Hermann Albertsson
4-0 Jóhann Hilmar Hreiðarsson
5-0 Hermann Albertsson
6-0 Gunnar Már Magnússon (víti)
7-0 (Sjálfsmark)
Rautt spjald: Garðar Marvin Hafsteinsson (Draupnir)

Liðið: Atli (Hans), Ingvar, Eiki, Ísak, Sigþór (Steini Sím), Snorri (Halldór), Vitkor, Gunni, Kiddi (Markús), Jói, Hemmi (Hilmar)

Næsta æfing: Mánudag á Ströndinni kl  18:30. Ak-inn 18:00 og Olís 18:05.

 

Myndir sem Bjarni Gunnarsson tók er hægt að nálgast á Flickr síðu hans eða HÉR!!!
(Hægt er að skoða myndirnar stórar og í fínum gæðum með því að smella á All sizes fyrir ofan myndirnar)



 

 
Upphitun: Fyrsti leikur sumarsins á Dalvíkurvelli
Written by Administrator   
Wednesday, 09 June 2010 23:04

Á morgun fer fram fyrsti leikur sumarsins á Dalvíkurvelli... loksins loksins! Völlurinn er í ágætu ásigkomulagi og verður bara spennandi að spila á honum fyrir framan nýju markatöfluna. D/R á leik á morgun, fimmtudag kl 20:00 gegn Draupni.

Draupnis-menn hafa bætt mörgum mönnum við sig frá síðastliðnu tímabili en nánast einungis er verið að ræða um Akureyringa sem koma úr yngriflokkastarfi KA eða Þórs. Margir þessara drengja eru mjög svo frambæralegir fótboltamenn og þurfa D/R svo sannarlega að hafa hausinn skrúfaðan rétt á. Eins og stðan í riðlinum er núna eru þeir í 2 sæti með 4 stig eftir 2 leiki, en það er svo sannarlega stutt á milli í þessu.
Nokkrir leikmenn Draupnis hafa áður spilað með D/R og er þeirra heitasta ósk að vinna sína fyrrum samherja, því er það deginum ljósara að við þurfum við að taka almennilega á þeim á morgun! 

Allir leikmenn D/R eru heilir og ættu að vera klárir í slaginn. Hópurinn er stór og öflugur og það komast því miður ekki allir fyrir á vellinum í einu, en það er ljóst að við verðum að hafa stórann og breiðann hóp fyrir komandi átök!

Stuðningsmannafélagið Brúinn ætlar að hefja upphitun kl 18:00 á Pizza veró á morgun. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir þangað, þar verða nokkrir Brúa-búningar til sölu!

 

Áfram Dalvík/Reynir - Allir á völlinn!

 
Skuldir!! *Uppfært!!*
Written by Administrator   
Sunday, 06 June 2010 23:38

Hey... borga!!

Hér er listinn:

Atli Óla - Æfingafatnaður 7000, skór 5000, sektir 700 og gömul sekt 1500 

Gunni - gömul sekt 6000, sektir 200

Haukur - Æfingafatnaður 7000

Hemmi - Æfingafatnaður 7000, skór 5000, sektir 200

Hilmar - Æfingafatnaður 7000,  sektir 200

Markús - Æfingafatnaður 7000, skór 5000, sektir 500

Viktor F - Æfingafatnaður 7000, 

Örvar - Æfingafatnaður 7000, sektir 800

 

Borga þetta í dag eða morgun! Ekki seinna...

rkn: 1177-05-403320
kt: 111189-3319

 

 
More Articles...
« StartPrev12345678910NextEnd »

Page 10 of 76