|
Á morgun, laugardaginn 28. ágúst, hefst það sem allir leikmenn D/R hafa beðið lengi eftir. Þá erum við að sjálfsögðu að tala um úrslitakeppni 3.deildar. Fyrsta viðureign Dalvíkur/Reynis í henni verður gegn Álftanesi og fer fyrrileikurinn fram á Bessastaðavelli kl 14:30  
Álftanes endaði í 2.sæti í A-riðli og lendir því gegn Dalvík/Reyni. Um Álftanes-liðið vitum við ekkert svakalega mikið nema hvað að þeir höfðu betur í baráttunni um 2.sætið en þar voru þeir í baráttu við góð lið á borði við Sindra. Álftanes hefur skorað 32 mörk í sínum riðli og fengið 23 á sig. Tapað 4 leikjum, 1 jafntefli og 9 sigurleikir í sumar í A-riðli. Þetta gerir 28 stig. Við erum þannig lagað séð að renna blint í sjóinn í þessar viðureignir gegn Álftanesi, en við vitum að við erum að fara spila við gott lið sem er að mestu byggt upp á leikmönnum af höfuðborgarsvæðinu. En hinsvegar vitum við það að við erum það góðir að við ætlum að vinna alla leiki sem við förum í og þessi leikur á morgun er enginn undantekning.
Í liðið Dalvíkur/Reynir eru flest allir heilir fyrir utan hin símeidda Ísak Einarsson. Hann mun samt sem áður ferðast sem sjúkraþjáfari á morgun með liðinu. Sigþór, Bessi, Hilmar hafa átt vð einhver smá meiðsli að stríða en verða samt klárir og Steini Sím er spurningamerki þar sem konana hans er vel ólétt, en allir ættu að vera klárir á morgun. Ljóst er að einhverjir stuðningsmenn ætla með á leikinn og er það vel. Við hvetjum alla brottflutta Dalvíkinga um að koma á völlinn og láta í sér heyra, við þurfum á ykkar stuðningi að halda. Liðið flýgur í leikinn og eru tímasetningar hjá leikmönnum hér að neðan: Mæting í N1 á Dalvík: 07:45 (einkabílar) Mæting inn á flugvöll: 08:30 Í rvk fara allir saman að borða. Ekki vitlaust er að rölta yfir í Hagkaup og kaupa sér eitthvað létt að borða til að eiga eftir leik þar sem enginn tími gefst til að stoppa og borða eftir leik. Flug suður: 08:55 Flug norður: 17:45 Ljóst er að þetta er stór dagur á morgun og leikmenn eru tilbúnir í slaginn. Undirbúa sig vel í kvöld, snemma að sofa og borða vel!
ÁFRAM D/R!!!!
|