Home Saga félagsins
Saga

Saga félagsins

 

Þó svo að Dalvík/Reynir teljist kannski til yngstu knattspyrnifélaga Íslands þá er löng saga á baki. Í raun má segja að hið sameiginlega lið sé elsta íþróttafélag á landinu ef horft er til stofnárs ungmennafélaganna tveggja sem standa á bakvið stofnun þess, Ungmennafélagsins Reynis (1907) og Ungmennafélags Svarðdælinga - Dalvík (1909) eða samtals 200 ár!

UMFS Dalvík og Reynir Árskógströnd tóku í fyrsta sinn þátt í Íslandsmótinu undir sameiginlegu nafni Dalvík/Reynir árið 2006. Árangurinn hefur aðeins látið á sér standa, en liðið hefur keppt sín tvö keppnistímabil til þessa í 3. deild. Vonandi breytist það hinsvegar á 200 ára afmælisárinu.

Áfram Dalvík/Reynir!