Helstu styrktaraðilar
| upphitun: D/R - Einherji |
| Written by Administrator | |||||||
| Thursday, 22 July 2010 22:38 | |||||||
|
Á morgun fer fram leikur á Dalvíkurvelli, loksins loksins. Langt er síðan síðasti leikur var spilaður á Dalvík en nú geta stuðningsmenn liðsins mætt á völlinn og horft á sína menn. Leikurinn hefst kl 20:00 á föstudagskvöldinu. Einherja-menn hafa verið í smá ströggli að undanförnu en liðið hefur ekki náð á fylgja á eftir góðum árangri á síðasta tímabili. Hinsvegar má aldrei afskrifa lið eins og Einherja því þeirra styrkleiki er klárlega barátta og spila þeir af mikilli hörku og djöflagangi. Í herbúðum D/R ættu flest alliir að vera klárir í slaginn fyrir utan meiðslapésana Hilmar Dan og Ísak Einarsson. Þeir verða báðir frá í einhvern tíma. Þess fyrir utan eru allir heilir og ljóst er að hópurinn er stór og sterkur.
Stuðningsmannafélagið Brúinn ætlar að hittast á Pizza Veró á morgun kl 19:00. Öllum er að sjálfsögðu heimilt að mæta þangað. ÁFRAM D/R!!!!!! Leikmenn: Mæting í Ak-inn kl 17:00. Dalvíkingar mæta í N1 kl 17:10. Mæting heim til Garðars í Te&rist kl 17:30.
Powered by !JoomlaComment 3.26
3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved." |



