Helstu styrktaraðilar
| Stuðningsmannafélagið Brúinn |
|
|
|
| Written by Administrator |
| Saturday, 22 November 2008 13:11 |
Stuðningsmannafélagið Brúinn
Síðastliðin sumur hefur mér fundist ákaflega léleg stemning vera á heimaleikjum D/R, fáir áhorfendur sem sjaldnast hvöttu liðið, heldur sátu og horfðu og undirritaður var einn þeirra. Sumarið 2008 fannst mér kominn til tími til að gera bragarbót á og byggja upp þá stemningu sem var á Dalvíkurvelli þegar liðið var í fyrstu deild, með trommum, söngvum og hrópum. Ég viðraði því þessa hugmynd við nokkra einstaklinga úr byggðarlaginu sem þeir tóku vel í og úr varð stuðningsmannafélagið Brúinn, sem heitir í höfuðið á eldheitum stuðningsmanni sem nú er fallinn frá og blöðungnum sem gefinn var út fyrir heimaleiki. Markmiðið með félaginu er því einfalt, að standa við bakið á liðinu okkar og breyta Dalvíkurvelli í ljónagryfju sem erfitt er fyrir andstæðinga að sækja stig á. Klúbburinn er ákaflega óformlegur og það kostar ekkert að vera með! Eina skilyrðið fyrir veru í klúbbnum er að mæta á völlinn og styðja sitt lið. Við viljum skapa góða stemningu og góðan móral á vellinum og því er röklaust skítkast út í dómara ekki vel séð. Eins og áður segir þá er klúbburinn mjög óformlegur og eru aðeins tvö embætti í honum enn sem komið er. Ef þú hefur áhuga á að ganga í klúbbinn þá sendu tölvupóst á netfangið mitt:
Magni Þór Óskarsson – formaður This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Björn Már Björnsson - kallmeistari
![]() |
| Last Updated ( Wednesday, 03 February 2010 16:51 ) |

Brúinn - Stuðningsmenn


