Home Fréttir umfjöllun: Sanngjarn sigur í gær
umfjöllun: Sanngjarn sigur í gær
Written by Administrator   
Saturday, 24 July 2010 12:15

Í gærkvöldi tók D/R á móti Einherja á Dalvíkurvelli. Leikir var við vægast sagt frábærar aðstæður en 20+ stiga hiti var nánast allann leikinn og logn. Völlurinn var flottur og fullt af fólki í stúkunni.

     Leikurinn byrjaði mjög vel fyrir D/R en strax eftir 6. mínútur skoraði Ragnar Hauksson sitt fyrsta mark fyrir D/R þegar hann fékk góða sendingu utan af vinstri væng beint á kollinn og Raggi kláraði færið virkilega vel með flottum skalla. Sannkölluð draumabyrjun hjá D/R.
     Eftir þetta datt tempó D/R niður um heilan helling og voru menn í hinum ýmsustu vandræðum. Framherji Einherja-manna gerði vörn okkar hvað eftir annað lífið leitt og sólaði varnarmenn okkar hægri vinstri án þess þó að skapa einhverja hættu.
Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir D/R.

 

     Í seinnihálfleik kom allt annað lið D/R til leiks eftir skarpa hálfleiksræðu frá trommaranum. Seinnihálfleikurinn byrjaði á svipaðan hátt og sá fyrri en D/R setti annað mark mjög snemma eftir að Markús Darri Jónasson fékk sendingu inn í teiginn frá hægri og kláraði færið með góðu innanfótarskoti á lofti.
    Eftir þetta var nokkuð ljóst hvar sigurinn myndi lenda og ljóst var að D/R var mun líklegra til að bæta við mörkum frekar en þeir að minnka muninn. Þriðja mark leiksins gerði Ragnar Hauksson eftir að aukaspyrna var tekin fljótt upp í horn, þaðan fyrirgjöf frá vinstri og þar var Raggi mættur og kláraði færið vel. Virkilega hröð og snörp sókn sem endaði með flottu marki sem kom okkur í 3-0.
    Fjórða mark leiksins gerði varamaðurinn Gunnar Már Magnússon eftir að leikmenn D/R komust upp að endamörkum og gáfu boltann fyrir markið og þar var Gunni mættur og kláraði með flottu skoti. 4-0.
     Síðasta mark okkar manna skoraði enn og aftur hinn magnaði Ragnar Hauksson eftir að hafa sloppið einn í gegn og klárað færið frábærlega fram hjá markmanni gestanna. Með þessu marki tryggði Raggi sér þrennuna í leiknum og fagnaði með því að setja nýtt íslandsmet í hástökki bak við markið. Til gamans má geta að Raggi er fyrsti leikmaður D/R til að skora þrennu í sumar þrátt fyrir að menn hafi verið mjög nálægt því oft.
    Þarna inn á milli náðu Einherja-menn að pota inn einu marki, en sigurinn var klár.

5-1 heimasigur. Flott úrslit.

Liðið: Atli (Hans), Ingvar, Eiki, Steini, Sigþór (Kiddi), Viktor, Jói (Halldór), Snorri (Atli Ó), Markús, Bessi (Gunni), Raggi

 

Frábær sigur og geðveik stemmning á vellinum. Takk fyrir stuðninginn og er þetta vonandi það sem koma skal í þessum heimaleikjum sem eftir eru!

1. sætið er okkar !!!   ÁFRAM D/R

Comments
Add New Search RSS
Write comment
Name:
Email:
 
Title:
Please input the anti-spam code that you can read in the image.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."