Home Fréttir Upphitun: Dalvík/Reynir - Draupnir
Upphitun: Dalvík/Reynir - Draupnir
Written by Administrator   
Tuesday, 27 July 2010 23:03

Á morgun heldur Dalvík/Reynir í sinn síðasta útileik í riðlakeppninni. Nú er ferðinni heitið til Akureyrar eða nánar tiltekið inn í Bogann. Spilað verður við Draupnis-menn og hefjast leikar kl 20:00.

Draupnis-menn eru staddir í 6. sæti riðilsins með 7 stig eftir 8 leiki. Þeir hafa verið að ná ágætis úrslitum að undanförnu og staða þeirra í riðlinum gefur einhvernveginn ekki rétta mynd af liðinu myndi ég segja.
    Flestir muna þó eftir síðasta leik liðanna þar sem D/R fór með nokkuð auðveldann 7-0 sigur af hólmi en nokkuð ljóst að sá leikur er búinn og munu Draupnis-menn koma með hefndarhug til leiks á morgun.
    Nokkrir leikmenn í þessu liði eru fyrrum leikmenn D/R og þrá þeir fátt heitara en að vinna D/R.

D/R hefur hinsvegar náð sér á góða siglingu aftur eftir tapið fyrir austan. 5-1 góður sigur í síðasta leik gefur mönnum kraft inn í þennan leik og með sigri förum við langt með að tryggja okkur inn í úrslitakeppnina. Ljóst er að við þurfum að sjálfsögðu að gefa okkur alla í verkefni því bæði Magni og Leiknir F. eru farin að banka á dyrnar hjá okkur.
    Allir leikmenn D/R eru heilir og klárir í slaginn og því er ljóst að það er verðugt verkefni að velja bæði í liðið og hópinn.

Vonandi sjáum við sem flesta á leiknum. Við þurfum stuðning, það er deginum ljósara!
Áfram Dalvík/Reynir!!!

 

Leikmenn:
Mæting inn í Bogann kl 18:45. Dalvíkingar í N1 kl 18:00 (Farið á einkabílum).

Comments
Add New Search RSS
Write comment
Name:
Email:
 
Title:
Please input the anti-spam code that you can read in the image.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."