|
Í kvöld spilaði D/R gegn Draupni í Boganum á Akureyri. Blíðskapar veður var og og mátti vart greina eina þúfu á vellinum (Laddi). Fyrsta mark leiksins lét ekki bíða lengi eftir sér en það gerði fyrirliðinn Hermann Albertsson eftir að hafa fengið frábæra sendingu í gegnum vörnina kláraði Hemmi færið glæsilega með skoti í markhornið. Vel gert og leikurinn rétt orðinn 4 mínútna gamall. Eftir þetta hélt D/R áfram að spila flottann fótbolta og virtist á tímabili eins og það væri bara eitt lið á vellinum. Margar glæsilegar sóknir voru framkvæddar en því miður vildi boltinn ekki inn og menn pínu klaufar að bæta ekki við marki. Annað markið kom undir lok fyrrihálfleiks þegar Ragnar Hauksson skoraði flott mark eftir að hafa náð að klóra sig fram hjá varnarmönnum Draupnis. Staðan því orðin 2-0 og mjög stutt eftir að hálfleiknum. Undir lok fyrrihálfleik náðu Draupnis-menn hinsvegar að minka muninn þegar vörnin sofnaði hjá D/R eftir innkast. Hálfleiksstaða því 1-2 fyrir D/R. Eftir snarpa hálfleiksræðu komu D/R beittir til leiks og staðráðnir í því að klára verkefnið og það all hraustlega. Draupnis-menn byrjuðu seinnihálfleikinn þó ágætlega og einhver smá skjálfti í liði D/R var þó fljótur að fara. Varamaðurinn Viktor Már Jónasson var rétt kominn inná þegar hann skoraði frábært mark. Brotið var á Viktori á miðju vallarins en hann var hinsvegar snöggur á fætur og dómarinn lét leikinn halda áfram, Viktor rauk af stað og sólaði nokkra og vann nokkrar tæklingar, en endaði herlegheitin með föstu skoti í fjærhornið. Flott framtak hjá Viktori. Eftir þetta var aldrei spurning hvor meginn sigurinn myndi lenda og D/R bætti í ef eitthvað var. Draupnis-menn ógnuðu marki okkar lítið og virtust þeirra sóknartilburðir aðalega ganga út á bomba boltanum fram á stóra og stæðilega sóknarmenn og það svosem gekk hjá þeim í nokkru skipti. Næsta mark leiksins var langþráð en það skoraði Kristinn Þór Björnsson eftir að hafa fengið boltann í hægramegin í vítateignum lagði hann boltann fyrir sig og kláraði með skoti upp í þaknetið. Staðan því orðin 1-4 og lítill vindur í seglum Draupnis-manna. Fjórða og síðasta mark leiksins skoraði Jóhann Hilmar Hreiðarsson með hnitmiðuðu skoti fyrir utan teiginn í markhornið. Flott skot hjá Jóa sem kláraði leikinn. Jói átti síðan síðar í leiknum hörku skot sem stenfndi upp í sammann en ekki vildi betur til að Kiddi þvædist eitthvað fyrir og fékk boltann í bakið!
Lokastaða því 1-5 góður sigur. Sætið í úrslitakeppnina ætti að vera nokkuð öruggt þar sem Magna-menn þurfa að vinna alla sína og við að tapa með einhverjum stjarnfræðilegum tölum. Liðið: Atli (m), Halldór, Eiki (Ingvar), Steini, Markús (Sigþór), Atli Ó (Viktor), Hemmi, Gunni, Kiddi, Bessi (Jói), Raggi (Snorri) Næsta æfing er á mánudaginn kl 18:30 á Dalvíkurvelli. Ljóst er að menn þurfa að hafa aðeins hugann með sér um Versló og menn eiga að hreyfa sig sjálfir minnst 2 sinnum. Skemmtið ykkur vel í fríinu... Áfram D/R!
|