Home Fréttir
Fréttir
Umfjöllun: sigur í fyrri leiknum
Written by Administrator   
Sunday, 05 September 2010 09:44

Í gær spilaði D/R gegn KB á gervigrasinu við Leiknisvöll. Leikið var í töluverðum vindi og smá rigningu.

 
Leikurinn byrjaði mjög vel fyrir D/R sem spilaði með vindinn í bakið í fyrriháfleik. Liðið náði að setja mjög háa pressu á KB-menn sem virtust eiga í vandræðum með að spila út úr þeirri pressu. Nokkuð ákjósanlega dauðafæri litu dagsins ljós í fyrrihálfleik sem ekki náðist að nýta ásamt því að D/R hefði átt að fá klára vítaspyrnu.
Það er dýrt að klára ekki færin í svona leik en fyrsta og eina mark leiksins gerði fyrirliðinn Hermann Albertsson eftir að Bessi fékk fyrirgjöf frá vinsti og náði að leggja hann fyrir Hermann sem skoraði af stuttu færi.
Staðan i hálfleik var því 0-1.

Í seinnihálfleik komust leikmenn KB mun meira inn í leikinn án þess þó að skapa sér einhver alvöru færi. D/R liðið féll aðeins aftar á völlinn og gekk illa að halda boltanum. KB menn náðu, eins og áður sagði, ekki að skapa sér neina alvöru hættu fyrir utan eitt og eitt skot vel fyrir utan teig.
Leikurinn endaði því svona, 0-1 sigur í gettóinu.

Liðið: Atli (m) - ingvar, eiki, sigþór, markús, kiddi, gunni (snorri), jói (dóri), hemmi, bessi (atli ó), raggi (dessi)

 

Næsti leikur á miðvikudagin á Dalvíkurvelli kl 17:15 og þar verðum við að klára dæmið.

 
Upphitun: 4 liða úrslit hefjast
Written by Administrator   
Friday, 03 September 2010 14:12

Á morgun, laugardaginn 4.sept, hefjast undanúrslitin í úrslitakeppni 3.deildar. Á morgun munu leikmenn D/R ferðast suður á land, nánar tiltekið í Breiðholtið í Reykjavík og spila þar við KB.
Leikurinn hefst kl 17:00 á Leiknisvelli. Skyldumæting fyrir alla brottflutta Dalvíkinga.

 

Um lið KB-manna vitum við ekkert sérstaklega mikið. Við vitum að þetta er lið sem er í góðu líkamlegu formi og geta spilað flottan fótbolta. Í sumar spiluðu þeir í C-riðli og enduðu í 2.sæti á eftir Tindastól. Þar töpuðu þeir 2 leikjum, 1 jafntefli og 9 sigrar sem gerir 28 stig.
Í úrslitakeppninni fóru þeir í gegnum Berserki eftir mikla dramantík. Fyrri leikinn unnu þeir 2-0 á sínum heimavelli en í seinnileiknum lentu þeir 2-0 undir og þurfti því að framlengja. Þar höfðu KB menn betur í baráttunni og eru því komnir áfram í undanúrslit.
KB er einhverskonar varalið Leiknis í Breiðholti, en þeir spila heimaleiki sína á gervigrasinu á Leiknisvelli.
Einn af þeirra hættulegustu mönnum má nefna strák sem heitir Stefán Ingi Gunnarsson en hann hefur skorað 15 mörk fyrir þá í sumar og Þórður Einarsson sem er spilandi þjálfari þeirra.


Í herbúðum D/R eru allir leikmenn heilir og ferskir eftir góðan sigur gegn Álftanesi. Ljóst er að Steinn Sím mun því miður ekki spila með liðinu en þau hjónakorn eignuðust stelpu snemma í morgun og óskum við þeim innilega til hamingju með stúlkuna.
Ljóst er að D/R mun leggja allt í þennan leik og ætti að vera nokkuð auðvelt að peppa menn upp í slaginn. Núna er komið að því sem allir leikmenn D/R hafa beðið eftir frá því í nóvember á síðasta ári. Núna verður allt lagt undir og höfum við fulla trú á þessu verkefni.
Stuðninsmannafélagið Brúinn ætlar að sjálfsögðu að mæta á leikinn og styðja við bakið á sínum mönnum og hvetjum við gamla og brottflutta Dalvíkinga til að samgleðjast okkar mönnum í stúkunni.

D/R mun fljúga í leikinn og er flugið kl 12:40 á morgun. Mæting á flugvöllinn kl 12:10 og N1 Dalvík kl 11:30 á einkabílum.
Leikmenn eiga því að hugsa vel um sig í dag og kvöld, snemma sofa og borða vel!

Við þurfum öll að einbeita okkur að þessu verkefni hvort sem það eru leikmenn, stjórnarmenn eða stuðningsmenn. Hjálpumst öll að í þessari baráttu.
ÁFRAM D/R!!!!

 
Umfjöllun: Sigur á Dalvíkurvelli
Written by Administrator   
Tuesday, 31 August 2010 21:44

Leikurinn hófst í blíðskaparveðri á Dalvíkurvelli eftir smá seinkun þar sem dómari leiksins hafði meiðst og kalla þurfti til varadómara. Um leikinn er skemmst að segja að leikmenn D/R voru  mun betri aðilinn eins og lokatölur gefa til kynna. Álftnesingar sköpuðu sér engin færi nánast og það hættulegasta var þegar Markús hreinsaði af öryggi í stöngina og horn.

Fyrsta mark leiksins gerði Gunnar Már Magnússon með flottu skoti fyrir utan teig og staðan var þannig í hálfleik. Álftnesingar sóttu aðeins í sig veðrið í seinni hálfleik en voru mest í því að hreinsa boltann fram völlinn þar sem allt strandaði á varnarlínu heimamanna.
Hermann Albertsson gerði annað markið eftir að hafa komist einn í gegn.
Þriðja markið gerði Gunnar Már úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Markúsi innan teigs.
Þá var sigurinn orðinn nokkuð öruggur og í uppbótartíma skoraði Bessi Víðisson langþráð mark eftir gott einstaklingsframtak en áður hafði einum leikmanni Álftanes verið vikið af leikvelli.

Magni Þór

 

Stuðningsmannafélagið Brúinn voru snillingar í brekkunni, fullt fullt fullt af fólki á vellinum og stemningin glæsileg.

Myndir úr leiknum er hægt að sjá HÉR  á heimasíðu Bjarna Gunn.

Vinningstölur í happadrætti D/R!
Málverk: 152
kort í rækt: 32
Flugeldar: 156 - 210
Gjafabréf í Húsasmiðju: 63 - 242 - 45 - 111 - 129
Vöruútekt N1: 16 - 219 - 15
Kjöt Norðlenska: 130 - 1 - 179
Gjafakörfur Ekta: 93 - 94 - 13
10 kg fiskur: 22 - 31 - 21 - 48 - 153
Gos og kex: 150 - 84

 
Upphitun: Síðari leikurinn á morgun
Written by Administrator   
Monday, 30 August 2010 21:40

Á morgun fer fram síðari leikur Dalvíkur/Reynir og Álftanesar í 8. liða úrslitum 3.deildar. Leikurinn hefst kl 17:30 á Dalvíkurvelli. ATH það kostar 1000 kr inn á völlinn, ekki er tekið við kortum.

Eins og menn vita þá endaði fyrrileikur liðanna með 1-2 sigri D/R á Bessastaðavelli. Sá leikur var gríðarlega erfiður þar sem Álftanes er með hátt og öflugt lið sem geta spilað mjög fínann fótbolta. Þeir eru líkamlega sterkir og hættulegir fram á við.
Í þeirra herbúðum er leikmaður að nafni Andri Janusson sem hefur skorað helling af mörkum fyrir Álftanes en hann var einnig í Haukum.
Fyrir fyrrileikinn vissum við lítið sem ekkert um þetta lið en núna ættum við að vera reynslunni ríkar og ættum að þekkja betur inn á veikleika liðsins og einnig sterku hliðar þeirra.
Ljóst er að þeir munu selja sig dýrt í þennan leik þar sem einhverjir af þeirra mönnum eru komnir norður deginum fyrir leik og er undirbúningur þeirra mikill fyrir þetta mikilvæga verkefni.

Liðsmenn D/R eru aftur á móti staðráðnir í því að klára verkefnið á Dalvíkurvelli á morgun. Eins og áður hefur verið sagt var eitt af markmiðum tímabilsins að tapa ekki leik á Dalvíkurvelli og það markmið stendur að sjálfsögðu.
Við erum óneitanlega í þægilegri stöðu en menn eru að sjálfsögðu meðvitðair um allar þær hættur sem leynast ef menn mæta eitthvað með hangandi haus í leikinn. Eitt slæmt korter getur eyðilagt heilt sumar á morgun og leikmenn eru sammála um að það sé ekki tímabært að enda tímabilið á morgun.

Allir leikmenn D/R ættu að vera klárir í slaginn fyrir utan Ísak Einarsson sem æfði þó með liðinu í dag. Steini sím er ennþá spurningamerki þar sem þau bíða enn eftir ófæddu barni.

Brúa-menn ætla að hittast á Pizza Veró kl 16:30 og þaðan verður labbað saman á völlinn. Við þurfum allan þann stuðning sem við getum fengið á morgun. Munið, hálfnað verk þá hafið er og við ætlum að klára dæmið á morgun!

ÁFRAM D/R!!!!

 
Umfjöllun: Sigur á Álftanesi í fyrri leik liðanna
Written by Administrator   
Saturday, 28 August 2010 20:21

Í dag mættust Dalvík/Reynir og Álftanes á Bessastaðavelli. Leikurinn var fyrri leikur liðanna í úrsltiakeppni 3.deildar.


Leikið var við flottar aðstæður á Álftanesi, ágætt veður og fullt af áhorfendum á vellinum.  Völlurinn var sléttur og fínn en grjótharður og erfiður að því leiti.
Leikurinn byrjaði á háu spennustigi og áttu bæði lið erfitt með að spila boltanum. D/R var þó sterkari aðilinn og líklegri til að skora því Álftnesingar náðu aldrei að ógna marki D/R í fyrrihálfleik.
Ragnar Hauksson skoraði fyrsta mark leiksins um miðbik fyrrihálfleiks þegar hann slapp einn inn fyrir vörn heimamanna og Raggi kláraði færið með léttum klobba á markmanninn. Staðan því orðin 0-1. Eftir þetta fengu D/R nokkur ágætis færi sem ekki náðist að klára.


Í seinnihálfleik komust Álftnesingar aðeins inn í leikinn án þess þó að ógna okkar marki eitthvað verulega. Vörnin stóð sig frábærlega og hélt vel.
Hinsvegar náðu Álftnesingar að skora nokkuð ódýrt mark þegar einn leikmaður þeirra nær að dansa framhjá nokkrum varnarmönnum D/R og leggja hann út á kant, þar kom fyrirgjöf út í teiginn og skot sem Atli Már var grátlega nálægt að verja, en inn lak boltinn. Staðan orðin 1-1.
Við þetta misti D/R smá damp en náðu fljótlega að vinna sig aftur inn í leikinn. Nokkur ákjósanlega marktækifæri fóru forgörðum en það var hinsvegar markahrókurinn og maðurinn í viðtölunum Ragnar Hauksson sem skoraði sitt annað mark í leiknum eftir að fast skot D/R var varið út í teiginn og þar var Raggi mættur á fjærstönginni og kom okkur í 2-1.

Þannig endaði leikurinn, 1-2 sigur Dalvíkur/Reynis á Álftanesi í dag.
Hinsvegar má ekki gleyma því að það er einungis hálfleikur, síðari leikur liðanna er á þriðjudaginn á Dalvíkurvelli kl 17.30

Stuðningsmannafélagið Brúinn... Takk kærlega fyrir stuðninginn. Þetta var ykkar dagur, þið gjörsigruðuð stúkuna að vanda og eigið heiður skilinn fyrir ykkar framlag. Leikurinn væri ekki sá sami án ykkar.

 

Skemmtilegar fréttir birtust á fréttavefnum fótbolti.net í dag. Fyrri fréttin var liður hjá þeim sem kallast "Hvað er að frétta af Dalvík/Reyni" og þeim spurningum svaraði aðstoðarþjálfarinn Jóhann Hreiðarsson af stakri snild.
Hægt er að lesa þetta HÉR

Ragnar Hauksson var svo tekinn í viðtal strax eftir leik í dag einnig af fótbolta.net. Þar sagði hann meðal annars alþjóð frá því hversu flottir strákar væru í þessu liði, allir nema aðstoðarþjálfarinn sem væri hundleiðinlegur. Hvet alla til að skoða þetta viðtal við Ragga.
Hægt er að sjá það HÉR

 

En eins og áður sagði... það er bara hálfleikur!!

Næsta æfing á morgun þar sem menn EIGA að skokka sjálfir 20 min. Síðan næst á mánudaginn á Dalvík kl 18:30

 
« StartPrev12345678910NextEnd »

Page 1 of 78